Stjörfu strandverðirnir koma til bjargar
Dagatal
10.07.2006 17:34:35 / Babu

Dagbók Babú - Meistaramót og djamm

Um helgina var ég bara í rólegri kanntinum. Fékk þá FÁRÁNLEGU flugu í hausinn að bjóðast til að vera caddý (draga settið) hjá Dúdda (Óla Magna) á meistaramótinu í golfi á föstudeginum (í stormi og fellibyl) og var svo slakur heima um kvöldið til að vera sæmilegur daginn eftir, enda ætlaði ég að draga settið AFTUR fyrir óla......sem gat engu að síður ekki neitt á mótinu og ´skíttapaði á endanum fyrir bróðir sínum!!! (Gummi Bergs var næstum á svipuðu skori og hann..... og HANN GETUR EKKI NEITT)

Allavega ágætis mót þar sem hæst bar að Búni kom á réttum tíma alla dagana en það stóð eins tæpt og tæpt að gat staðið...... kallinn gerði sér engu að síður lítið fyrir og vippaði sér beint upp á teig, tók þærl mögnuðum skömmum fyrir að vera svona seinn og sló brautarmetið á 1.braut á Svarfhólsvelli (ef farið er eftir reglum keilusambandsins þ.e.a.s). Leifur Viðars sló samt Búna við og kom ALLT OF SEINT, fékk samt að spila 18.holur en var svo vísað úr mótinu.... ÞEGAR HANN BÚINN AÐ SPILA ÞAÐ fyrir að koma of seint.... Svekkjandi.

Stjarfir kepptu annars magrir á mótinu....

Bergur gat ekki neitt í meistaraflokk, Óli Magni gat rétt aðeins minna og skíttapaði fyrir Begga með einu höggi.Gummi Bergs vann 1.flokk eftir þrí framlegndan leik og vítaspyrnukeppni við ungan krakka. Spergen vann 2. flokkinn með yfirburðum eftir smá baráttum við Vigni Egil. Jobbi gat líklega ekki mikið en hafði þó geggjaðan caddý (Lalla) og Steini Friðgeirs vann svo 3.flokkinn við mikinn fögnuð hjá sjálfum sér, og fékk viðurnefnið krútt (við mikinn fögnuð hjá sjálfum sér)

Frændurnir unnu sína flokka

En kvöldið var nokkurnveginn svona:

 

Byrjaði með Málfríði (Nice lanugage) eftir fyrsta bjór.

 

Eftir mat og glens í golfskálanum bauð Hlynur Geir liðinu í partý heim til sín, þar var byrjað á því að fá alla Poolara til að koma að hurðinni og votta henni virðingu sína, þarna er ég að skapa hefð sem ég ætla alltaf að gera þegar ég kem í heimsókn til Hlyns!!! (fyrir þá sem ekki fatta er þetta Liverpool merki á glugganum sem Hebbi Viðars smellti upp á SNILLDARLEGAN hátt)

Við gerðum tilraun til að upp Skítamóral-a Gauja með gle-jau-junum mínum.................

.............Sem tókst svona líka ljómandi vel.

Dóri Mort og Gunnhildur stigu gömlu dansana (við undirleik U2) DÓRI COME ON

Eftir partý hélt síðan hersingin áleiðis á Pakkhúsið þar sem.......

....sem helga fagnaði því að vera loksins orðin 20 ára og því leyfileg í Pakkhúsinu, en Helga var að koma þarna inn í fyrsta skipti á ævinni að kvöldi til enda aldrei verið hleypt þar inn áður vegna MJÖG strangrar gæslu sem er þar alltaf (kem að því eftir smá)

Helvítis gæslan á Pakkhúsinu (vantar Inga Magga sem er líklega mest tengdur mér af þeim þrem!!!)

En það er klárlega af sem áður var þegar maður komst inn á því að A. vera í einhverju ráði í skólanum, B. þekkja dyraverðina C- vita hvar maður kemst inn bakatil D- vinna á skemmtistaðnum E- þekkja hljómsveitina, maður þarf alltaf að borga. þarna uppfylli ég t.d ansi mörg af þessum skilyrðum but no ..... u don´t mess við Leifur. :haha:

Sallý gerði líka tilraun til að Skítamóralesera sig með gle-ja-junum mínum og Spergen gerði allt til að hjálpa málstað hennar (nema dansa upp á borðum)

ATH fyrir þa´sem ekki vita þá er Jón þessi gaur sem er alltaf fullur um helgar

Steinunn var aðeins opnari fyrir Möggu (heldur en Ella, sjá Hallgeirsey) En Magga greyið afrekaði það annars bláedrú að fá tvo nánast fulla bjóra yfir sig (ekki frá mér) og Alma bannaði mér að fá handklæðistusku til að þurka hana þegar ég bað um það!!!

Stebbi var eiginlega of svalur til að vera þarna........

..............En tók auðvitað smá úgí búgi með okkur hinum

Æ nei ég hef farið á dansgólfið!!!!

æ já og ég byrjaði með Ingu!!! (Inga er það ekki ennþá on?) Það yrði VANDRÆÐALEGT matarboð hjá tengdó!!!

Ása Valdís var annars geðveik (bókstaflega sýnist mér) á barnum

Eyrún vildi ólm eiga mynd af sér með mér.....

Trausti gaf grænt ljós á þetta allt saman

Finndu villuna

Úfff it´s official, ég hef verið á helvítis dansgólfinu!!!

Annars eru vinkonur Helgu þarna að sýna henni hvað einhver sérstakan dans enda hefur hún aldrei séð þetta áður!!! :haha:

Annars tókst ekki að Skítamóralesera Sally en hún komst í Bjórbandið

Gauti var gerður að opinberum flugmanni Hnohna liðsins

Svo var kysst bless

Annars vorum við svo í gær að hefja undirbúning fyrir Þjóðhátið sem við erum víst að fara á . T.d. var risastórt tjald sem Leifur var að kaupa prófað........

.........sko sjáið bara, þarna ætlum við að vera ásamt fjórum stelpum.......................... eða ekki

Annars er stefnt á að skokka yfir Fimmvörðuháls næstu helgi (ég, Dúddi og Gummi Bergs allavega) og er það gert af sömu ástæðu og ég hjólaði heim um daginn..... hef ekki hugmynd

Inga skrifaði
Still on honey! Djö... missturu af snilldarmorgunmat ;) Tommi minn
Helga Lillian skrifaði
Ohh hvað það var gaman á Pakkhúsinu, ég hef greinilega verið að missa af miklu síðustu ár, enda aldrei farið áður eins og þú komst svo skemmtilega inná. Eins gott að vera orðin tvítug og komast loksins inn;) Ég tala nú ekki um að geta farið á barinn líka;)
c",) skrifaði
Inga og Einar. Ég skal gefa ykkur saman frítt.
Margrét skrifaði
Einar minn þú þarft ekki að vera svona sorry yfir þessum bjór:) Enginn er verri þó hann vökni... hehe
GK skrifaði
Það er þægileg staðreynd að maður þarf ekki að fara út að skemmta sér um helgar. Manni dugar að lesa þessa snilld eftir hverja helgi...

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  56  Alls: 391353
Dagsetning
28. janúar 2012
Leitarbox

Síðast inni
Ég var síðast inni þann 10 febrúar
Dagatal
Leitarbox