Stjörfu strandverðirnir koma til bjargar
Dagatal
10.02.2010 19:08:09 / L-ALI-G

Er einhver sem les þetta ennþá?

Það er bara búið að vera svo rólegt hjá mér undanfarið að þegar ég kem heim þá er ekkert annað að gera en steikja heilasellurnar á einhverju net vafri. Þar sem ég er ótrúlega getulaus þegar kemur að vafri og get ekki skoðað neitt annað en það sem er í favorites dálknum rakst ég á þessa síðu okkar.

Gaman væri ef að menn gætu commentað á þessa grein ef svo illa vildi til að þeir væru enn að skoða þessu síðu. Er ekki kominn tími á smá reunion? annað hvort á þessari síðu eða þá að við stofnuðum aðra síðu og tækjum smá bull. Svo fer nú að koma að stórum seðli hjá okkur aftur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 22:26:22 / L-ALI-G

Sælar

jú það er nú alltaf nýjar færslur hér á hverjum degi eins og von er og vísa. Þvílík og önnur eins skrif. Jú þeir sem ekki vissu það þá er ég jú enn á lífi en maður er nú bara eins og gullfiskur í búri sem syndir hring eftir hring. vinna sofa vinna sofa.Það væri nú gaman ef við færum nú að standa við það að spila einn stórann seðil saman, .þar sem loksins er nú hægt að fara að setja öruggt merki á Liverpool. Við þurfum ekkert að hafa áhyggjur af mínum mönnum því þeir eru alltaf sunnudagsleikir, þannig að við þurfum ekkert að fórna þrítryggingu á það. En vill nú óska Liverpoolmönnum með sigurinn um helgina og ég er ekki frá því að lirfurnar taki þetta í ár. veit allavega að við tökum þetta ekki.
hvernig fór lottoið?



» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 21:36:53 / L-ALI-G

Vantar þig að losna við gömlu drusluna??

Í öllu því krepputali undan farnar vikur og um hvað heimur versnandi fer þá reynir maður að sjá alla mögulega ljósa punkta í lífinu, maður reynir að hlægja af öllum lélegum bröndurum sem maður heyrir og hugsar upphátt hvað Ásgeir í tölvulistanum sé nú frábær kall. Svo passar maður sig líka á því að slökkva alltaf á fréttunum þegar þær byrja á klukkutíma fresti.
Eitt fannst mér reyndar alveg frábært, ein auglýsing sem fékk mig til að hugsa til allra þeirra sem væru kannski í misgóðum samböndum og þyrftu kannski að ná sér í smá aur þegar allir eru á leiðinni til andskotans.
"Vantar þig að losna við gömlu drusluna, komdu þá til okkar og við látum þig fá 15.000.- krónur fyiri hana"
Þetta er Sorpa sem auglýsir, ef menn eru að leita eftir auðfengnum krónum þá er bara að snarast með hana á staðinn.

Gleðilega kreppu

» 1 hafa sagt sína skoðun

13.04.2008 21:39:04 / Dúddi

Nothing to do on a sunday night

Hafið þið einhverntíman lent í því að vera fyrir framan tölvuna á sunnudagskvöldi og áttað ykkur skyndilega á því að þið eruð búnir að klára internetið?

Hugsið ykkur um aftur

...já það er rétt hjá ykkur þið áttuð eftir að skoða spjallið á barnalandi
Eins furðulega og það hljómar koma stundum upp umræður þar sem eru einmitt vel við okkar hæfi og á okkar áhugasviði.... t.d þessi http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=9366196&advtype=52&page=1

svo er auðvitað líka alltaf hægt að fara á www.youtube.com og leita að öllum fjandanum samanber þetta fyrir neðan (sem b.t.w var snilld á sínum tíma og er enn)


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 13:49:48 / Dúddi

Fjárfestingasjóður Stjarfra Strandvarða

Heilir og sælir kumpánar og kumpónur (þó aðallega kumpánar þar sem engar kumpónur eru í okkar hópi.... og svo út af því líka að kumpónur er ekki orð)

Eins og þið munið kannski þá unnum við fleiri fleiri hundruð milljóna tugi með því að fá 13 rétta hérna í den tid. Síðan þá er þessi peningur búinn að liggja inni á sérstakri bók á mínu nafni. Þetta er búið að safna á sig einhverjum vöxtum og þannig hlutum og bankinn hefur dregið samviskusamlega allan fjármagnstekjuskatt af þeirri upphæð (með kærri kveðju og þökk frá Ríkisskattstjóra) þannig að þessar milljónir okkar stóðu í 84.000 kr. í morgun.

Til að gera stutta sögu alveg fáránlega langa langar mig aðeins að minnast á litlu börnin í Afríku, þannig er nú ástandið í henni Afríku að litlu sætu krúttlegu börnin þar eiga sko engann helv. 84.000 kall............. óheppin þau

Ég keypti hlutabréf fyrir 84.000 íslenskar krónur í félagi sem heitir Kaupþing
það voru eitthvað margir hlutir á einhverju gengi.... kem með nánari upplýsingar um það síðar þegar ég er búinn að fá eitthvað yfirlit yfir þetta.

Hluthafar í Fjárfestingasjóði Stjarfra Strandvarða eru (og endilega leiðréttið mig ef þetta er vitlaust)

Óli Magni
Lalli
Jósef
Bjarki
Bergur
Einar
Unnar
Guðmundur B.
Fannar
Jón Sveinberg

Hver þessara manna á 10% hlut og geggjað gaman

Ég mun síðan koma reglulega með upplýsingar um hvað er að gerast hjá Kaupþingi og hvernig gengið á þessum bréfum okkar er að þróast.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2008 22:08:21 / L-ALI-G

Mummi með nýjar myndir

Jæja þá er nú komið að því. :) hjúkrunarfræðingurinn minn sem sér um heimahjúkrunina er nú búin að taka umbúiðirnar af skurðunum. Eftir talningu skurða kom það í ljós að 13 skurðir voru á vinstri löpp og 23 á þeirri hægri.


http://a165.ac-images.myspacecdn.com/images01/8/m_ac2f31069763c800aad2fac60a94cdc4.jpg

En já eins og þið sjáið er ég orðinn ansi hreint skorinn

http://a310.ac-images.myspacecdn.com/images01/91/m_0ab6001fb714b36866502e7fcd2521dd.jpg



http://a714.ac-images.myspacecdn.com/images01/84/m_d0f789ac1ff09ab3511d04884303c131.jpg



http://a759.ac-images.myspacecdn.com/images01/24/m_88862d8cd914bd4f04d81022976788de.jpg

og það var ansi vel hugsað um mig

http://a887.ac-images.myspacecdn.com/images01/77/m_49be4ba77bcdd0f5aa881ae5271b0b56.jpg



http://a289.ac-images.myspacecdn.com/images01/80/m_7a3a1f3d860cd9bce8602ae41176ed98.jpg

og umbúðirnar svo sem voru á löppunum


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.03.2008 09:13:23 / L-ALI-G

Mummi múmía part two

Jú kæru vinir ekki örvænta, bráðlega koma inn nýjar og eldheitar myndir af mínum eldheitu fótleggjum þar sem grisjur verða nú fjarlægðar í dag. Verð nú samt að vara menn við því að það sem verður í boði er nú sennilega ekki fyrir viðkvæma. En það sem er af mér að frétta nú síðustu daga er jú það að það er kominn einn svakalegasti kláði sem ég hef upplifað þar sem allt draslið er nú að gróa sem aldrei fyrr og ekki má svo gleyma að táfýlan er að ná hámarki þar sem ég er búinn að vera í sömu sokkabuxunum nú í 5 sólarhringa. En endilega fylgist með þegar fleiri spennandi myndir verða settar inn í kveld eða a morgun.

mummi kveður


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 13:29:38 / L-ALI-G

Mummi múmía svarar kalli

Jú takk fyrir það Einsi (eða eye of the tiger), er heldur betur orðinn skorinn eftir mína fyrstu líta aðgerð. Eins og sjá má er ég ansi vel vafinn enda var allt orðið ansi vel stíflað.




*Margar rannsóknir benda til þess að samræmi sé á milli líkamshæðar og áhættu á að fá æðahnúta, þetta er greinilegra hjá körlum heldur en hjá konum.



*Einnig er sagt að þeir sem standa mikið við vinnu eigi við meiri hættu á að fá æðahnúta.(þarft því ekki að hafa áhyggjur babú) ;)



Ég vill svo þakka kærlega fyrir allar hugulsömu kveðjurnar sem ég hef fengið þar sem líst hefur verið áhyggjum af ansi óþægilegum hægðar förum mínum, var ansi stirður fyrsta daginn en get þó sagt að það sé allt að liðkast og er farinn að geta notið samverustundana við páfan aftur.

    Þangað til næst..
Mummi múmía   :)







       
     
       
     
     

    

» 8 hafa sagt sína skoðun

18.03.2008 16:45:19 / Babu

Mummi snýr aftur.....

Jæja ég var að óska eftir fréttum af ykkur og hef nú komist yfir brakandi nýjar upplýsingar af honum Lalla.....Lallanum okkar eins og Dúddi sagði (aldrei) svo mislukkulega.

En þökk sé einhverjum slatta af læknamistökum og algengum misskilningi þá er nú búið að tjasla kallgreyinu svo hressilega saman að hann er nú orðinn svona...........

Lalli rétt fyrir hádegi í dag. Betur bundinn saman en gamla DBS hjólið mitt (Drusla Bundin Saman)


Kappinn vildi nú ekki alveg taka undir þetta hjá mér og sagðist "bara" vera með æðahnúta.....

Helstu áhættuþættir fyrir æðahnútum eru eftirfarandi:
  • Aldur - öldrun veldur sliti á æðalokunum sem getur endað með bilun þeirra.
  • Kyn - konur eru líklegri en karlar til að fá æðahnúta, líklega vegna áhrifa hormóna á meðgöngu, rétt fyrir tíðir og við tíðahvörf. Taka hormónalyfja gæti aukið áhættuna

Þannig að þar hafið það það kæru Stjörfu Strandverðir..........það er eins og við höfum alltaf haldið.............................. hann Lalli er gömul kona!!!!


Alltaf flottur samt.
.
.
.
.
Væntanlegt á Stjarfa er myndasyrpa frá Lalla þar sem hann sýnir okkur erfiðleika sína við hin ýmsu dagslegu störf sem verða víst erfiðari þegar manni er pakkað inn í klósettpappír!!!

....er það ekki annars Lalli? :p


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2008 00:32:28 / Babu

Ég gúgglaði Skattman

og þetta var eitt af því fyrsta sem kom upp......

Þvílík vonbrigði........ég var að vonast eftir Dúdda


En hvað er að frétta af ykkur Stjarfir
- Dúddi hvernig er að skattinum, heyrði að þú værir búinn að trúlofa þig skattinum með bindandi samning!!!
- Lalli hvar í fjandanum ert þú niðurkominn? sá þig um jólinn held ég alveg örugglega?
- Unnar, ertu ennþá að hvetja menn til afbrota í keflavík?
- Bergur, gastu ekki haldið í Hrefnu í klukkara í viðbót ;)
- Bjarki, hvaða flakk er á þér? áttu ekki að vera heima að reikna?
- Spergen, hvar ert þú að styðja við stiga?
- Bergsson, bara ekki saga í puttann....ættir að vera farinn að læra þetta
- Fannar, hvað ert þú ekki að gera þessa dagana?
Þið hinir koma svo...


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 23:41:29 / Dúddi

Ábending til Skjás eins

Ef ykkur vantar klukkutíma uppfyllingarefni í dagskránna sýnið stillimyndina... ekki High school reunion.

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 19:22:28 / Dúddi

Ábending til Reykvíkinga

Hættið þessu rugli og haldið nýjar kosningar.

þetta er orðið frekar þreytt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 19:23:49 / Dúddi

Jæja

Fyrst af öllu vindum við okkur í mál málanna... hvernig vinnur maður svona mót? http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/01/20/danmerkurmot_i_sjalfsfroun/

í annan stað þá voru Íslendingar alveg þrælmikið að gera í brækurnar á móti Frökkum (þeir eru frakkir þessir helv. Frakkar), gerðu enn þá meira í buxurnar á móti Svíum og þunglyndisský virðist vera að færast yfir Ísland... en HEY lítum á björtu hliðarnar Selfoss rústaði Þrótti 30-19 á föstudaginn víííííí.

en annars er ekkert að frétta, drita einhverju skemmtilegu hérna inn einhverntíman síðar.

Góðar stundir


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 01:03:20 / Babu

babu.tk

babu.tk - babu.tk - babu.tk - babu.tk - babu.tk - babu.tk - babu.tk - babu.tk -babu.tk

Þar sem ég er búinn með þetta fokkings bloggar.is kerfi hef ég ákveðið að kaupa mér lén og skipta um bloggvettvang................ ég er semsagt farinn að borgar fyrir það að segja fólki sögu mína sad as it is!!!!!!!! Fjandinn.

En vinsamlegast lítið við og skiljið eftir ykkur spor á


- setjið þetta síðan í favorites
- uppfærið linkinn á síðunni ykkar
- og breiðið út boðskapinn, en þó ekki of víða


Við þetta uppfærist enn einu sinni merkilegur bloggferill manns....


http://glundur.blogspot.com/
- Fyrst vorum það við Lalli með hina skammlífu en steiktu síðu Glundur

http://www.blog.central.is/stjarfir
- síðan sameinuðumst við Dúdda og gerðum okkar ástsælu Stjörfu Strandverði 


http://babu.bloggar.is/

- að lokum urðu Stjarfir ekki nógu stórir fyrir okkur alla svo ég fór líka á babu.bloggar

 

og svo núna 

 

babu.tk - babu.tk - babu.tk - babu.tk - babu.tk - babu.tk - babu.tk - babu.tk -babu.tk

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 62
Heimsóknir
Í dag:  33  Alls: 336324
Dagsetning
8. september 2010
Leitarbox

Síðast inni
Ég var síðast inni þann 10 febrúar
Dagatal
Leitarbox